Friday, September 19, 2008
Sammála klerk

Það er ekki oft sem ég sammælist trúarleiðtogum en þessu verð ég bara að vera sammála. Mikki mús er klárlega dragbítur á skemmtilegar persónur Disney og hefur alltaf valdið mér ákveðnum ama. Ég fletti venjulega hraðar í gegnum sögur af honum heldur en öðrum í Andrésarblöðum og -bókum og yrði missir af honum ekki mikill.

Ég er samt ekkert endilega sammála forsendu klerksins.


Posted at 19.9.08 by Ruber
Viltu tjá þig um þetta?

Sunday, September 14, 2008
Nýtt ár, nýtt barn, nýr skóli

Ýmissa grasa hefur kennt síðan síðasta færsla var skrifuð síðastliðinn október. Á þessu rétt tæpa ári náði ég að klára Háskólabrú Keilis, byrja í HR, eignast nýja dóttur og helling af fullt af nýjum vinum. Að ógleymdri ógleymanlegri utanlandsferð með félögum mínum á sport.is þar sem ég heimsótti bæði Anfield Road og Old Trafford, magnað alveg hreint.

Margoft er ég búinn að minnast þess að ég eigi bloggsíðu þegar ég kemst í tuðstuð en einhverra hluta vegna hef ég aldrei látið verða af því, man ekki einu sinni hverju mig langaði að tuða yfir.

Það er vonandi að þessi færsla sé upphafið af stormandi bloggferli á næstunni, enda gerir maður nánast hvað sem er til þess að sleppa því að læra.


Posted at 14.9.08 by Ruber
(2)hafa eitthvað að segja

Saturday, October 20, 2007
Hneyksl

Ekki nóg með að fyrirsögnin sé falleg, heldur hef ég einkar gaman að því að tjá mig um það sem hneykslar mig. Tvennar fréttir síðustu viku hneyksla mig.

1.
Hvað ætli sé hægt að gera fyrir peninginn sem 10 litlir flatskjáir kosta? Árna Johnsen er líklega nákvæmlega sama, það sem honum fannst hið mesta þjóðþrifamál var að gefa 10 flatskjái til handa föngum í hegningarhúsinu á Skólavörðustíg. Ég hélt alltaf að hegningarhús og fangelsi væru frelsissvipting, að menn húktu í sínum klefum og reyndu að skammast sín fyrir það sem þeir hafa gert og að dagblöð væru næg upplýsingalind frá samfélaginu í kring. Svo er greinilega ekki. En þá hefði maður haldið að gömul sjónvörp væru nóg fyrir fangana til að horfa á ... nei þá hefðu þeir sennilega ekki náð háskerpuútsendingum.

2.
Konur eru konum verstar. Það mætti halda að stelpurnar í íslensku knattspyrnunni væru rétt að skríða á fermingaraldurinn miðað við hvernig þær hegða sér. Að þær hafi virkilega fundið hjá sér þörfina til þess að taka sig saman um að kjósa ekki Margréti Láru Viðarsdóttur sem bestu knattspyrnukonu landsins. Það eina sem ég get sagt við þessar konur er: Hver andskotinn gengur að ykkur? Þið eruð ekki í leikskóla, nú veit ég ekki hvort Margrét Lára sé svona óþolandi montin eða hvað það er en hún er bara klárlega sú langbesta í fótbolta á landinu og ég hélt að kosningin snerist um það. Það segir margt um hana að hún var ekki mjög áberandi í sumar en samt bætti hún markametið sitt frá því í fyrra og stóð sig frábærlega með landsliðinu í leikjum þeirra fyrir EM 2009. En sandkassinn hafði orðið.


Posted at 20.10.07 by Ruber
(1)hafa eitthvað að segja

Monday, October 15, 2007
Ár

Þrátt fyrir að maður sé kominn með ágætis reynslu í þessu finnst manni alltaf jafn skrýtið að þetta:

Geti orðið að þessu:

Á einu ári.

Til hamingju með daginn litlabarn


Posted at 15.10.07 by Ruber
Viltu tjá þig um þetta?

Wednesday, October 10, 2007
Heppinn

Mikið óskaplega hlýtur Aron Pálmi að vera feginn með að fá loksins að lifa lífinu áhyggjulaus.  Nýkominn úr stofufangelsi þar sem hann gat ekki gert neitt en er nú fluttur til Íslands þar sem hann getur lifað sínu lífi í friði.

---------------------------------------

Er ég einn um það að finnast það bjánalegt að ekki sé hægt að opna íþróttahús vegna þess að það vantar síma?


Posted at 10.10.07 by Ruber
Viltu tjá þig um þetta?

Tuesday, October 09, 2007
Ímyndiði ykkur bara

Eins og flestir verður maður sjálfsagt að segja skoðun sína á þessari friðarsúlu hennar Jókó. Ég skal vera fyrstur til þess að viðurkenna það að ég er ekki hrifinn af Yoko Ono og hennar listgjörningum, eða gjörningalist yfirleitt (nema kannski þegar Bibbi Curver fór hamborgarahringinn, mér fannst það fyndið).
Þessi súla hennar Yoko finnst mér hins vegar vera skemmtilegt verk.  Tekur ekki mikið pláss en sést vel úr mörgum áttum.  Stórsnjallt.

Það er að hvessa, ótrúlegt en satt.


Posted at 9.10.07 by Ruber
Viltu tjá þig um þetta?

Next Page




Ég heiti Róbert


   


Contact Me

<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

MYNDIR


Viðkunnalegir einstaklingar



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed


blogdrive