Monday, October 08, 2007
Öppdeit

Á maður ekki að segja aðeins frá því sem drifið hefur á daga manns.  Ööö ...

Um helgina var ég að vinna í IKEA og komst að því að allir Íslendingar eiga eitt sameiginlegt, að vera fáránlega tímabundnir.  Mér finnst samt svolítið skrýtið að fólk hafi tíma til þess að labba í gegnum IKEA þegar það hefur ekki tíma til þess ...

Nú er aðeins vika í að krílið verði eins árs gamalt.  Rakel Emma fer nú flestar sínar leiðir á tveimur misfljótum og er alltaf að styrkjast í ferðalögum sínum sem verða lengri og lengri með hverjum deginum, bara tímaspursmál hvenær ég get leitt hana til dagmömmunnar.

Vá hvað ég á erfitt með að tjá mig.  Mér gengur samt vel í skólanum.


Posted at 8.10.07 by Ruber
(1)hafa eitthvað að segja

Saturday, September 22, 2007
Góði dátinn Svekk

Hversu ógeðslega svekkjandi er það að krílið (sem er alveg að verða eins árs), sem er búið að vera á leiðinni að byrja að labba í ég veit ekki hvað langan tíma, skuli einmitt ákveða að fara í göngutúr þegar hún er hjá mömmu sinni?
Það frábæra við það er að hún gerði það heima hjá ömmu sinni og afa í Kópavogi sem að sjálfsögðu mynduðu herlegheitin.

------------------------------

Af mér: Skólinn gengur dúndrandi vel.  Enn sem komið er liggja stærðfræðin og bókfærslan mjög vel fyrir mér og er ég mikið í því að hjálpa hinum sem ekki hafa sama grunn og ég í þessum fögum.  Hin fögin ganga líka mjög vel.
Kennararnir eru misjafnir, allir góðir nema einn - þannig að það er eiginlega bara einn misjafn kennari

Það væsir ekki um okkur feðginin hérna á Fjörugötunni, okkur líður alveg afskaplega vel saman og henni gengur alveg ofsalega vel hjá dagmömmunni.  Enda er hún mikil selskapsmanneskja og var hún í banastuði þegar við fengum heimsókn frá Jóhanni bróður og Sibba skólafélaga sem mætti með sínar tvær dætur, 3ja ára og á sama aldri og Rakel.  Sú fékk galsakast og skemmti sér konunglega, steinrotaðist svo líka um leið og gestirnir fóru.

Þar til síðar...


Posted at 22.9.07 by Ruber
(3)hafa eitthvað að segja

Wednesday, September 12, 2007
Eru ekki allir í

Þegar maður er einmana byrjar maður að gúgla.  Persónulega finnst mér þetta helvíti fyndið.

Posted at 12.9.07 by Ruber
Viltu tjá þig um þetta?

Tuesday, September 11, 2007
So...

you think you can tell...

Ég fann eitt sem ég get talað um.
Eitt sem mér finnst pínulítið merkilegt.  Á öllum barnafötum frá fyrirtækinu NEXT stendur skýrum stöfum, á sama stað og númerið á flíkinni er, "Keep away from fire"

En ekki hvað?  Ég sé mig ekki fyrir mér nálægt eldsvoða að hugsa: "Djöfull, ég hefði getað slökkt þetta með barnafötunum." 


Posted at 11.9.07 by Ruber
Viltu tjá þig um þetta?

Meðbyr

Eftir að hafa horft á veðurfréttirnar áðan segi ég bara eitt: Ég vona að það verði meðvindur!

Mig langar til þess að segja eitthvað merkilegt eða hafa skoðun á einhverju merkilegu - en það kemur bara ekkert upp í hugann núna.

 


Posted at 11.9.07 by Ruber
Viltu tjá þig um þetta?

Monday, September 10, 2007
Íslandsmet?

Skildi ég vera fyrsti Íslendingurinn sem hefur farið inn í IKEA, stytt sér leið að því sem hann ætlar að kaupa og farið með þann eina hlut að afgreiðslukassanum án þess svo mikið sem að hafa gramsað í né keypt nokkuð annað í leiðinni?
Sé fyrir mér mynd af mér í blöðunum á næstunni... og líklega mynd af mér í IKEA þar sem mér verða meinuð viðskipti í framtíðinni.

Ég hef aldrei verið jafn hamingjusamur með að þurfa að mæta í skóla á laugardegi, það voru allir fegnir fríi í dag.


Posted at 10.9.07 by Ruber
Viltu tjá þig um þetta?

Previous Page Next Page




Ég heiti Róbert


   


Contact Me

<< June 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05 06
07 08 09 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30

MYNDIR


Viðkunnalegir einstaklingar



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed


blogdrive