Sunday, September 09, 2007
Hvað var ég að spá að vera ekki fyrir löngu búinn að kaupa mér miða á tónleika með Chris Cornell? Og er eitthvað að mér vegna þess að mér finnst ekkert svo merkilegt að hann hafi verið að halda tónleika hérna.
Mikið búið að ganga á hér á Tidewater Drive síðustu daga. Ég er orðinn einstæður faðir, Rakel Emma verður komin með lögheimili hjá mér í byrjun vikunnar og er komin með dagmömmu hér rétt hjá. Degi eftir að hún flutti til mín henti ég henni í pössun - rosalega á þetta eftir að ganga vel hjá mér.
Ástæðan fyrir pössuninni: Fyrsta djammið hjá frumgreinadeildinni, maður sleppir því ekki þó maður sleppi kannski einhverju öðru djammi. Hópurinn minn hittist heima hjá einum úr hópnum og fór svo til Kef City á skemmtistaðinn Yello. Þar rifjaði ég upp kynni mín við einn af aldagömlum vinum, náunga sem hefur ekki verið með í för lengi. Hr. Fullur var semsagt mættur á svæðið, náungi sem tekur sér bólfestu í mér þegar óhóflegt áfengismagn er í blóði mínu, og hann sá um restina af kvöldinu fyrir mig. Eina leiðin til þess að fylgjast með því sem Hr. Fullur var að gera er heimabankinn og kortakvittanir. Mér sýnist hann hafa haldið aðeins of laust um debetkortið...
Laugardeginum eyddi ég að mestu með krökkunum... eftir að ég var almennilega vaknaður, og sunnudagurinn var líka krakkadagur að mestu.
Næsta vika er mjög spennandi.
Posted at 9.9.07 by
Ruber
Friday, September 07, 2007
The groove of Keflavik airport NATO army base
Sorrí Addi ég get líklega ekki hjálpað þér að flytja á morgun. Bíð samt spenntur eftir boði í innflutningspartí :P
Posted at 7.9.07 by
Ruber
Wednesday, September 05, 2007
hvað skal sagt, hvað skal gjört?
Nú eru þrír dagar liðnir af skólanum sjálfum og mest öll feimnin farin úr fólkinu hér á svæðinu. Kláraði það loksins í dag að kaupa skólabækurnar, keypti enskubækurnar en kennsla í ensku hefst á morgun.
Mér finnst merkilegt að eins þægilegt og þjált tungumál og enskan er að ekki skuli vera hægt að búa til skemmtilega námsbók í ensku. Þrátt fyrir að hafa farið í gegnum nokkrar enskubækur hef ég aldrei nokkurn tímann séð skemmtilega bók.
Rakel Emma er að fara að flytja til mín á morgun og hefur aðlögun hjá dagmömmu um leið. Gengið verður frá flestum hnútum þess efnis á morgun. Ég kem þó líklega til með að þurfa pössun fyrir hana á föstudaginn þar sem farið verður íslensku leiðina í hópefli þá um kvöldið.
Posted at 5.9.07 by
Ruber
Monday, September 03, 2007
Ég get lítið að því gert að mér finnst þetta alveg hreint djöfullega fyndið.
Posted at 3.9.07 by
Ruber
Ein vika er liðin af skólanum og verð ég að segja að mér líst alltaf betur og betur á þetta. Með hverjum deginum í síðustu viku var ég ánægðari með ákvörðun mína um að drífa mig í skóla og gera eitthvað úr mér, og það skemmtilega við samfélagið hér, þá sérstaklega þá sem eru í sama námi og ég, eru í nánast sömu sporum og ég. Þ.e. fólk er búið að fórn miklu til þess að koma hingað, en á móti kemur býður þetta ár upp á bjartari framtíð.
Vonir um það að krílið verði hjá mér í vetur glæddust heldur betur í dag en dagmömmupláss er laust hjá einni hér á Heiðinni. Við ætlum að fara og líta á aðstæður hjá henni í dag og verða nánari fréttir af því fluttar hér.
---------------------
Sem Vallarrotta kíkti ég á menninguna í bænum sem flugvöllurinn er kenndur við, kíkti á lífið eftir miðnætti á föstudaginn og svo fór ég með börnin í traffíkina á laugardaginn.
Ég, Patrekur Leó og Rakel Emma röltum um aðalgötuna í Keflavík þar sem margt var um manninn. Við vorum alveg fram yfir flugeldasýninguna en eftir hana röltum við örlúin heim til pabba og þeirra þar sem við skildum bílinn eftir. Þar hvíldum við lúin bein áður en við lögðum af stað á Heiðina, en Rakel Emma, sem hafði sofið af sér flugeldasýninguna í vagninum, vaknaði hjá þeim og var á hörkuspjalli við einhvern sem við hin sáum ekki.
Heimleiðin var ansi athyglisverð. Leið sem tekur yfirleitt ekki nema um 5 mínútur eða minna var farin á 45 mínútum. Aldrei áður hef ég upplifað það að ég keyri svo hægt að bensínnálin hækkar.
Fleira er ekki að frétta eins og er
Posted at 3.9.07 by
Ruber
Monday, August 27, 2007
Nú fer í hönd þriðja nóttin mín hér uppi á heiði.
Fyrstu nóttina hafði ég dóttur mína mér til halds og trausts.
Aðra nóttin, þá síðustu, gerðust skrýtnir hlutir. Um fjögur-leytið um nóttina/morguninn heyrði ég þvílíka sprengjuhvelli, voru minnir mig fjórir talsins og virtust alltaf koma nær og nær. Svo hætti það.
Ég fór að sofa aftur en vaknaði við það að einhver mjóróma var að banka á dyrnar hjá mér og kallaði á mömmu sína.
Féllu á mig tvær grímur. Minnugur þess að hafa aðeins drukkið tvo bjóra áður en ég fór að sofa var ég þess fullviss að manneskjan fyrir utan hurðina væri að gera mistök. Sem var og raunin hjá litla guttanum sem hafði farið blokkavillt.
Setningarathöfn frumgreinadeildar fór fram í dag og fór fram úr björtustu vonum mínum. Vonirnar voru reyndar engar. Hópurinn virðist blanda af fólki af öllum aldri af báðum kynjum og verður spennandi að takast á við það sem framundan er. Eins og einhver ræðuhaldaranna sagði, og ég snarhendi yfir á engilsaxnesku: "I am the chosen one." Til þess að leiðrétta allan misskilning fyrirfram var Jose Mourinho ekki einn ræðuhaldara. Og ræðuhaldarinn sagðist heldur ekki vera einn hinna útvöldu, heldur sagði hann að við sem fengum inn í skólann værum hin útvöldu. Ég var semsagt frekar að túlka orð hans en að færa það sem hann sagði beint yfir á ensku. Skiljiði?
Posted at 27.8.07 by
Ruber