|
Hversu ógeðslega svekkjandi er það að krílið (sem er alveg að verða eins árs), sem er búið að vera á leiðinni að byrja að labba í ég veit ekki hvað langan tíma, skuli einmitt ákveða að fara í göngutúr þegar hún er hjá mömmu sinni? ------------------------------ Af mér: Skólinn gengur dúndrandi vel. Enn sem komið er liggja stærðfræðin og bókfærslan mjög vel fyrir mér og er ég mikið í því að hjálpa hinum sem ekki hafa sama grunn og ég í þessum fögum. Hin fögin ganga líka mjög vel. Það væsir ekki um okkur feðginin hérna á Fjörugötunni, okkur líður alveg afskaplega vel saman og henni gengur alveg ofsalega vel hjá dagmömmunni. Enda er hún mikil selskapsmanneskja og var hún í banastuði þegar við fengum heimsókn frá Jóhanni bróður og Sibba skólafélaga sem mætti með sínar tvær dætur, 3ja ára og á sama aldri og Rakel. Sú fékk galsakast og skemmti sér konunglega, steinrotaðist svo líka um leið og gestirnir fóru. Þar til síðar... |
| Áslaug October 4, 2007 12:10 AM PDT tók eftir að það stendur sitthvort á sitthvoru skiltinu þarma | ||
| Róbert September 26, 2007 01:07 PM PDT Ég hélt það líka, en stendur ekki Fjörugata á skiltinu? Þetta heitir Fjörubraut í þjóðskrá samt. | ||
| Áslaug September 25, 2007 08:04 PM PDT alveg magnað að þú vitir ekki hvar þú átt heima, gatan þín heitir FjöruBRAUT félagi...en að sjálfsögðu labbar hún fyrir mig, ég er mikið skemmtilegri ;) | ||
| Leave a Comment: |