Entry: Öppdeit Monday, October 08, 2007



Á maður ekki að segja aðeins frá því sem drifið hefur á daga manns.  Ööö ...

Um helgina var ég að vinna í IKEA og komst að því að allir Íslendingar eiga eitt sameiginlegt, að vera fáránlega tímabundnir.  Mér finnst samt svolítið skrýtið að fólk hafi tíma til þess að labba í gegnum IKEA þegar það hefur ekki tíma til þess ...

Nú er aðeins vika í að krílið verði eins árs gamalt.  Rakel Emma fer nú flestar sínar leiðir á tveimur misfljótum og er alltaf að styrkjast í ferðalögum sínum sem verða lengri og lengri með hverjum deginum, bara tímaspursmál hvenær ég get leitt hana til dagmömmunnar.

Vá hvað ég á erfitt með að tjá mig.  Mér gengur samt vel í skólanum.

   1 comments

Eybjörg
October 9, 2007   02:43 AM PDT
 
Sæll frændi...mig langaði bara að minna þig á að þú varst búinn að lofa að kíkja í sandgerðina við tækifæri:) Alltaf gaman að lesa síðuna þína...góður penni!!!

Kveðja
Eybjörg

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments