|
Ýmissa grasa hefur kennt síðan síðasta færsla var skrifuð síðastliðinn október. Á þessu rétt tæpa ári náði ég að klára Háskólabrú Keilis, byrja í HR, eignast nýja dóttur og helling af fullt af nýjum vinum. Að ógleymdri ógleymanlegri utanlandsferð með félögum mínum á sport.is þar sem ég heimsótti bæði Anfield Road og Old Trafford, magnað alveg hreint. Margoft er ég búinn að minnast þess að ég eigi bloggsíðu þegar ég kemst í tuðstuð en einhverra hluta vegna hef ég aldrei látið verða af því, man ekki einu sinni hverju mig langaði að tuða yfir. Það er vonandi að þessi færsla sé upphafið af stormandi bloggferli á næstunni, enda gerir maður nánast hvað sem er til þess að sleppa því að læra. |
| Birna Dís October 30, 2008 01:26 PM PDT omg, þekkirðu aðra Birnu? ;) En þar kom að að það kom nýtt blogg, endilega halda þessu áfram. bkv frá Frakklandi | ||
| The Birna September 14, 2008 09:39 PM PDT ÉG er tildæmis ein af nýju vinum hans Robba ;O) Nú munt þú ekki vera óhultur hérna Robbi minn MWHU HAHA | ||
| Leave a Comment: |